Pei býður seljendum sem nota Shopify upp á að setja upp greiðsluapp í vefversluninni sinni.
Seljendur sem eru að setja upp Pei Shopify appið í fyrsta skipti skulu fylgja leiðbeiningum → Ný uppsetning á Pei Shopify appinu
Seljendur sem hafa verið að nota eldri Pei Shopify payment gateway (HPSDK) skulu fylgja leiðbeiningum → Tilfærsla yfir í nýja Pei Shopify appið
Núverandi seljendur sem nota Pei payment gateway í Shopify þurfa, skv. Shopify, að færa sig yfir í nýja Pei Shopify appið fyrir 15. ágúst 2022 þar sem eldri Pei gateway verður úreldað af Shopify og seljendur munu ekki getað tekið á móti greiðslum í með þeirri leið. |
Að uppsetningu lokinni skal afvirkja eldra Pei payment gateway undir Settings → Payments
Smelltu á þennan hlekk til að fá upp nýja Pei Shopify appið í Shopify App Store
Smelltu á takkann sem segir Add app.
Þetta opnar þig inn á Shopify Admin síðuna þína (þú gætir þurft að logga þig inn). Smelltu á Install app hnappinn.
Hér opanst síða til að setja inn API tengiupplýsingar verslunarinnar þinnar (Client ID
, Client Secret
og Merchant ID
) fyrir Pei og smella loks á Connect
Ef API AÐGANGUR möguleikinn birtist ekki skal senda erindi með fyrirsögninni Shopify aðgangur á pei@pei.is með upplýsingum um notandann þinn og réttindum verður bætt við sölugáttaraðganginn.
Ef API AÐGANGUR möguleikinn birtist ekki skal senda erindi með fyrirsögninni Shopify aðgangur á pei@pei.is með upplýsingum um notandann þinn og réttindum verður bætt við sölugáttaraðganginn.
Hafa ber í huga að þegar nýr API aðgangur er stofnaður þá eru fyrri aðgangur óvirkjaður. Það þýðir að ef eldra Pei Shopify payment gateway er í notkun þá mun það hætta að virka eftir þetta skref. |
Notanda er birt viðvörun um að eldri API aðgangur óvirkjast og smella skal á Halda áfram
Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért að yfirskrifa eitthvað þá skaltu hafa samband við okkur á pei@pei.is og við leiðbeinum þér.
Til hamingju þú hefur stofnað nýjan API aðgang fyrir Pei.
Notanda er birt ClientId
, Secret
og MerchantId
sem eru API tengiupplýsingarnar sem skal setja inn í Pei Shopify appið
Pei API | Pei Shopify app |
---|---|
ClientId | Client ID |
Secret | Client Secret |
MerchantId | Merchant ID |
Farðu aftur á Shopify Admin síðuna þína og fylltu reitina út.
Smelltu á Connect takkann.
Þú flyst yfir á aðra síðu í Shopify Admin þar sem þér býðst að kveikja á appinu.
Þessa stundina er nauðsynlegt að velja einn af fjórum mögulegum greiðslukorta myndunum svo hægt sé að virkja appið. Við erum að vinna í að láta fjarlægja þennan óvænta fídus. Þessar myndir hafa engin áhrif nema útlitsleg.
Þessa stundina er nauðsynlegt að velja einn af fjórum mögulegum greiðslukorta myndunum svo hægt sé að virkja appið. Við erum að vinna í að láta fjarlægja þennan óvænta fídus. Þessar myndir hafa engin áhrif nema útlitsleg.
Til að virkja appið smelltu á Activate Pei takkann í neðra hægra horninu.
Verslunin þín er nú tengd við Pei og viðskiptavinir þínir geta greitt með Pei í checkout ferlinu í versluninni þinni.